Hamingjusamlega gift

01.01.2008 15:50:14 / sverrir

Áramótaskaupið

Mig dreymdi áðan að ég væri í boði með Steingrími J. og einhverjum fleirum sem ég þekkti ekki. Ég spurði hann svo að stóru spurningunni sem enginn þorði að spyrja hann að: Hvernig fannst þér eftirherman sem lék þig í skaupinu? Steingrímur fussaði og sveiaði og sagði að þetta hefði ekki verið vitund líkt sér. Síðan bætti hann um betur: Ég fór nú bara út á línuskauta þegar hann kom. Ég hef svo sem aldrei verið neitt fyrir áramótaskaup.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 16:41:41 / sverrir

Hér er hægt að hlusta á jólasmell FM957

<Smellið hér til þess að hlusta á jólasmellinn>

Það er ekki laust við að maður sé stoltur af Eyjólfi bróður sem syngur bara býsna vel í þessu lagi. Eins og oft vill verða finnst mér samt demóútgáfan sem þeir tóku upp heima með söng og kassagítar mun skemmtilegri. En til þess að hlusta á hana verðið þið að mæta hingað á Seljaveginn ;-)


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 00:33:39 / sverrir

Hýr jólasveinn?

Er ég einn um að hafa tekið eftir regnboganum á bak við jólasveininn á kókflöskunum fyrir þessi jól?

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 10:43:06 / sverrir

Jólasmellur FM 957

Loksins! Loksins hef ég tylliástæðu til þess að hlusta á FM 957. Jólasmellurinn þar er jafnframt jólasmellurinn í fjölskyldunni. Segi ekki meir.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 22:50:13 / sverrir

Spjall í kolli

Ég er oft ansi duglegur að tala við sjálfan mig. Heilu samtölin fara fram í hausnum á mér en svo gerist það stundum að upp úr mér vella nokkrar setningar. Þar sem ég dauðskammast mín fyrir að tala við sjálfan mig (opinberlega a.m.k.) þá lít ég oftar en ekki flóttalega í kringum mig. Það staðfestir væntanlega grun viðstaddra um að ég hafi verið að tala við sjálfan mig (þ.e. ef þeir eru eitthvað spá í mér en ekki sjálfir niðursokknir í eigin samtöl ;-).

Ég kom auga á mögulega lausn vandans þegar ég gekk yfir Framnesveginn um daginn og var í hrókasamræðum við sjálfan mig. Í stað þess að skammast sín á maður náttúrlega að enda samtalið „Eg er að koma. Við heyrumst!“ Handfrjálsi búnaðurinn er nefnilega orðinn næstum því ósýnilegur :-)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 11:21:22 / sverrir

Nýtt áhugamál

Ég hef aldrei haft sérlegan áhuga á því að vera sverðgleypir. Satt best að segja óar mér við tilhugsuninni einni saman enda þekktur fyrir gunguhátt.

Nú um helgina hefði hins vegar verið tilvalið að vera sverðgleypir, það er að segja ef ég hefði verið með grillpinna á mér.

Á sunnudag fórum við Ósk í skírn hjá Unu sem var hluti af fermingarundirbúningnum fyrir vorið. Eftir skírnina buðu tengdaforeldrarnir okkur á veitingastaðinn Vox sem er á hótelinu við Suðurlandsbraut sem er alltaf að skipta um nafn.

Maturinn var mjög góður en samt hafði ég mestan áhuga á lummum með flórsykri sem var verið að steikja þarna á staðnum. Það sem mér fannst síðan mest spennandi eftir matinn var súkkulaðigosbrunnur sem stóð á borði í miðjum salnum. Öllu verr leist mér á aumingjalegu tannstönglana sem voru við hliðina á honum. Það komust í mesta lagi tveir stórir melónu- og ananasbitar á hvert prik sem kallaði á fleiri ferðir enda ókurteisi að fullorðnir standi við gosbrunninn.

Nú hefði verið gott að vera með grillpinna! Þá hefði verið hægt að þræða 10 ávaxtabita upp á grillpinnann, velta honum um í súkkulaði, reka hann ofan í ginið og bíta saman tönnunum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 17:08:19 / osk

Hversu lágt er lagst?

Nú er ég búin að liggja veik alla vikuna og það er fyrst núna sem ég ræð við eitthvað svona flókið eins og að blogga. Ég er búin að liggja og það eina sem ég hef getað gert annað en að sofa og vorkenna mér er að horfa á sjónvarp. En það eru takmörk fyrir því hversu lágt er lagst. Þegar videoið datt af pásu (meðan ég var aðeins á netinu) var Leiðarljós í gangi. Og ég verð að segja að ég hef aldrei orðið vitni að lélegra sjónvarpsefni og það skal tekið fram að ég er fyrir drama (sbr. O.C.) og sápur (Nágrannar) en þegar endalaus samsæri, skelfilegur leikur og myndataka fara saman er meira að segja leiðum og þreyttum sjúklingi nóg boðið. Nú eru örugglega ótal blogg á nákvæmlega á þessa leið en ég bara varð...

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 20:13:49 / sverrir

Fréttablaðsblogg

Úff, hugsa væntanlega margir sem lesa þessar stopulu færslur (í raun ekkert voðalega margir). En ég mun hafa þetta stutt.

Í Fréttablaðinu í dag:

1. Viðtal við Sigurð Líndal. Hann kallar PowerPoint „kraftbendil“. Það er hér með tekið upp af undirrituðum.

2. Örstutt fyrirsögn+undirfyrirsögn innan í kálfinum „Allt“:

========================

Hvaðan kom bókin?

(Myndatexti: Bækur hafa fylgt mannkyninu lengi)

Vissir þú að hið latneska heiti bókarinnar, liber, er komið frá Rómverjum?

========================

Þetta er húmor :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 13:33:34 / sverrir

Bókaverðir

Ég hef á tilfinningunni að það séu bókaverðirnir sem tali hæst hér á bókasafninu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 18:50:54 / sverrir

Að vera maki

Fyrir forvitna vil ég byrja á því að taka það fram að ég er ekki að blogga um hjónabandið okkar Óskar.

Eins og kærustupara er siður höfum við Ósk farið í ýmis boð í fjölskyldunum síðan við byrjuðum saman. Eftir þessi boð öllsömul erum við bæði sammála um að fjögur jólaboð séu í það mesta :)

Á þessu ári hef ég svo farið í tvö ferðalög „sem maki“ með Ósk, bæði til Kaupmannahafnar með krökkum úr KHÍ og á ráðstefnu stærðfræðikennara á Selfossi um síðustu helgi. Ósk kom svo með mér sem maki á árshátíð Vantrúar snemma í haust.

Ég get ekki neitað því að mér finnst svolítið gaman að segja frá því að ég „fari með sem maki“. Kannski verður það þreytt á 30. ráðstefnunni en ég ætla að njóta þess að meðan ég get ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 15:18:41 / sverrir

Frumgerðin

Um daginn fór ég í heimsókn til afa og ömmu. Veitingar þar voru með hefðbundnu sniði: kók og Frónkex. Þegar ég var að fara sótti ég fartölvuna sem var í hleðslu í stofunni og setti niður í bakpokann. Þegar ég setti svo á mig ullarhúfuna þá datt upp úr í afa: „Nú veit ég hvað nörd er“. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var glaður í bragði þegar ég rölti niður Akurgerðið.

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 12:25:18 / sverrir

Ég játa

Já, það er ég sem er ábyrgur fyrir fjölgun máva í borginni. Missti mola úr rúnnstykkinu á leið úr bakaríinu áðan.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 19:59:17 / sverrir

Bannlisti

Ég er að taka til á gömlu mökkunum mínum (þrjú stk.) sem ég er hættur að nota. Rétt í þessu rakst ég á fróðlegt skjal frá þeim tíma þegar ég og Snæbjörn sátum við eldhússmakkann á Lynghaganum á meðan aðrir í fjölskyldunni voru í Mósambík.

Skjalið nefnist Bannlisti!!.txt og innihaldið skýrir sig nokkurn veginn sjálft.

===

Bannlistinn á þessum Makka:
Five
Backstreet Boys
Spice Girls
Green Day
Abba
Westlife
J.Lopez
C. Aguilera
Eminem
Bon Jovi
Aerosmith
Aqua
Ricky Martin
Mamas and the Papas
og ýmiss annar viðbjóðr.

===

Eitthvað hef ég mýkst með árunum því nú er að finna lög með bæði ABBA og Eminem í MP3-safninu mínu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 15:05:48 / osk

Kynslóðaskipti

Nú er elsta yngsta systir mín 11 árum yngri en ég en gerir samt marga af sömu hlutunum. Það er hún er í skóla, horfir á sjónvarp og bloggar (aðeins oftar en ég kannski). Á bloggsíðunni sem hún og vinkonur hennar halda úti (sem ég get ekki krækt á því hún er bönnuð fullorðnum) blogga þær um daginn og veginn sem er í sjálfu sér ekki svo ólíkur því sem ég á að þekkja.

Það sem er hinsvegar ólíkt og gerir mér næstum því ómögulegt að lesa það sem þær skrifa eru þessi endalausu merki. Flest merkin eru broskallar sem mér finnst í sjálfu sér sætir og skemmtilegir og nota við ýmis tækifæri ;o) En þeirra karlar eru ótrúlega fjölbreyttir og svo eru líka hjörtu <3 og fleiri tákn. Vandamálið er þó ekki að ég skilji ekki táknin heldur þessi ótrúlegi fjöldi þeirra tefur svo fyrir mér við lestur textans og stundum er eins og þau komi í staðin fyrir punkta og ég hreinlega bara næ ekki samhenginu í því sem þær vilja segja. Á þessu má þá sjá þennan aldursmun ef ekki á öðru ;oÞ


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 10:24:23 / sverrir

Stjörnufræðibók

Gamla kennslubókin hans Vilhelms (a.k.a. Fúsi) er loksins komin út í harðspjaldakápu með litmyndum og öllu tilheyrandi undir heitinu „Nútíma stjörnufræði“. Með útgáfu svona stórrar bókar á íslensku um svona sérhæft efni lyftir hann grettistaki og ber honum mikið lof fyrir það.

Í formála biður hann stjörnufræðinemendur afsökunar á því að bókin hafi hingað til verið í misgóðum handritum. Það sem mér fannst hins vegar skemmtilegast var þegar hann minntist á mig í formálanum (sjálfumgleði alltaf hreint á þessum bænum). Þar stendur eitthvað á þessa leið: Ég þakka Sverri „gettu betur“ Guðmundssyni og Kára Helgasyni sem lásu yfir megnið af texta bókarinnar...

Þarna hefur Fúsi greinilega komið auga á hættuna og byrgt brunninn áður en ruglingur átti sér stað við fjölmarga alnafna mína sem starfa í stjörnufræðigeiranum...


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill